Saga

Árið 2004 kom hópur ungs kóráhugafólks saman til að stofna blandaðan kór meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn.  Markmiðið var að syngja krefjandi kórtónlist.  Um haustið var kórinn skipaður 15 vönum kórsöngvurum og Staka varð að veruleika. Guðný Einarsdóttir var fyrsti stjórnandi Stöku, en hún var við nám við Dönsku tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn.

Stofntónleikar Stöku voru haldnir um vorið 2005 í Frederiksbastionen í Kaupmannahöfn, þar sem kórinn flutti verk sem samið var sérstaklega fyrir kórinn af Stefáni Arasyni. Þegar Guðný lauk námi í Kaupmannahöfn tók Stefán Arason tónskáld við stjórn Stöku og stjórnar hann kórnum enn.  Verkefni Stöku hafa verið mörg og fjölbreytt í gegnum árin þar sem þemu tónleika hafa meðal annars verið Staka syngur stökur, Músík í myrkrinu, Maríur, Staka, nú á dönsku og Staka er Madri-Galin. Tónleikar hafa verið haldnir víða í Kaupmannahöfn, Árósum, Slagelse, en einnig hefur Staka lagt land undir fót og sungið í París, Gautaborg, Stokkhólmi, auk tveggja heimsókna til Íslands.

Fjöldi söngvara sem hafa verið með í Stöku teljast meira en 60, mestmegnis Íslendingar en einnig danskir, færeyskir, breskir, norskir, sænskir, eistneskir og þýskir söngvarar.

Hafðu samband

Staka
Øster Voldgade 12 DK 1350
København K, Danmark

Á döfinni

Gleðilegt Nýtt ár
Uppákomur í 2012 verða fljótlega
settar inn hér